Við félagarnir erum oft spurðir að því hver sé í raun besta leiðin til þess að brenna fitu!! Það er eitt og annað sem hægt er að gera til þess að brenna fitu en fyrst og fremst er það þó persónubundið. Við bendum fólki klárlega á að gera þetta þannig að heilsusamlegi þátturinn sé númer 1, 2 og 20 svo fólk detti ekki í sömu þyngdina strax og einhverjum "kúr" er lokið. Það verður bara að segjast eins og er að við gefum ekki mikið fyrir einhverja skyndikúra sem eru skammvinnur ávinningur á vigtinni. Sumt fó
lk brennir fitu hraðar en aðrir og er það oftast vegna þess að þeir hafa meiri grunnbrennsluáhrif. Grunnbrennsluáhrif líkamans ráðast yfirleitt af því hversu vöðvar líkamans eru "virkir" það er oft á fræðimáli kallað metabolismi.
Það er alltaf sagt að þú eigir að auka "virkni" vöðvanna til þess að tapa þyngd og það eru orð að sönnu vegna þess að vel þjálfaðir vöðvar brenna meira heldur en slappir vöðvar. Vöðvar líkamans eru í raun brennsluofn líkamans ef það má orða það þannig. En það þarf að næra vöðvanna, því sterkari og virkari sem vöðvarnir verða, verður grunnorkuþörf þín meiri og þá þarft þú að borða meira til þess að halda við þessari brennslu, ekki öfugt. Því ef þú ert að vannæra þig eru mestar líkur á því að þú sért að ganga á vöðvavef og það er eitthvað sem við erum ekki að sækjast eftir þó síður sé! Prótein eru uppbyggingaefni vöðva og hafa skal í huga að þú fáir nægjanlegt hlutfall úr fæðunni í formi próteina. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á þetta og besti mælikvarðinn er að láta á það reyna sjálf/ur, við skorum á þig að láta á það reyna! Þú sérð vafalítið eftir því, það eitt er víst.
Mundu að:
- Vöðvar brenna fitu
- Vöðvar móta líkamann
- 1 kg af fituvef er 4x meira í ummáli en sama þyngd af vöðvum
- Þú verður nett/ari af vöðvum en fitu og lýtur klárlega betur út


