You are here: Forsíða Fréttir Andri Hermanns á leið á Islandsm. um páskana

Andri Hermanns á leið á Islandsm. um páskana

Eins og þið sjáið á myndinni þá er Andri Hermanns orðinn þokkalega klár fyrir mótið um helgina. Andri vann Bikarmótið í fitness s.l. haust og er hann í dag betri en hann var á þeim

tíma, hann er 2 kg þyngri og betur semetríaður að eigin sögn. Myndin var tekin s.l. miðvikudag og þá átti hann eftir að "carba" upp og verður að segjast að Andri er vel sigurstranglegur á íslandsmótinu sem fram fer um páskana á Akureyri. Líkaminn á Andra er orðinn það mikið niðurskorinn að næstum ómögulegt er að fitumæla manninn enda ekkert til að klípa í, þegar menn eru komnir þetta langt niður í fitu þá er fituprósenta kannski 4%.

Ef þú ert að hugsa "hvernig er þetta hægt" þá er uppskriftin að svona árangri ekki "gefins". Þú þarft nr 1. Þolinmæði/aga 2. Vilja 3. Rétt matarræði og öflugar æfingar. 

Andri hefur undanfarna 2 mánuði æft 10-12x í viku þar sem hann byrjar daginn á brennslu á fastandi maga á "low intensity" og lyftir seinnipartinn. Hann borðar 6 máltíðar yfir daginn og drekkuyr vel af vatni. Það sem fer ekki inn fyrir hans varir á þessu tímabili er matur sem inniheldur viðbættan sykur og mikið unnin matvæli, engar sósur, ekkert gos eða sætindi og þegar líkamiinn hefur verið laus við þetta í ákveðið langan tíma þá fer hann að brenna betur og meira. Hann hefur lagt mikla áherslu á það skorta ekki fitu í matarræðið, því holl fita brennir fitu. Eins og að setja 1 msk af kókosolíu eða annari jurtaolíu út í proteikshake inn er fín leið. 

Á myndi sést Bjöddi einkaþjálfari með Andra í Sporthúsinu eftir að hafa tekið síðustu skoðun á kappanum áður en hann hélt norður á Íslandsmótið. 

 


Skráning á póstlista