You are here: Forsíða Fréttir Líkamsrækt og Lýsi eru öflug vopn

Líkamsrækt og Lýsi eru öflug vopn

Þeir sem vilja grennast ættu að gleypa nokkrar lýsisperlur eftir að þeir eru búnir í líkamsræktinni, ef marka má frumniðurstöður ástralskra vísindamanna sem komust að því að sambland af líkamsrækt og lýsi minnkaði líkamsfitu, og hafði jákvæð áhrif á kólesterólmagn og æðastarfsemi.

Magn af góðu kólesteróli (HDL) jókst hjá þeim þátttakendum í rannsókninni er tóku einungis lýsi eða stunduðu líkamsrækt og tóku einnig lýsi, og svonefnd þ ríglyseríð (óheilsusamleg blóðfita) minnkuðu einnig. Um leið minnkaði líkamsfita þessara þátttakenda.

Það voru vísindamenn við University of South Australia í Adelaide sem gerðu rannsóknina, en niðurstöður hennar birtast í American Journal of Clinical Nutrition.

 


Skráning á póstlista