You are here: Forsíða Body.is Önnur Þjónusta

Næring

Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Er matarræðið að vefjast eitthvað fyrir þér og þú veist ekki hvað þú átt að gera ?

 

Oft er sagt að matarræðið sé himin og haf ef árangri skal náð. Það er mikið til í því, matarræðið er órjúfanlegur hluti þess að ná árangri og láta sér líða vel.  Það líður ekki sá dagur sem ég fæ ekki spurningar að einhverju sem snýr að matarræðinu, oft sömu spurningarnar. En sömu svörin gilda ekki fyrir alla og það þurfum við átta okkur á, því við erum misjafnlega byggð og þó svo 2 einstaklingar séu keimlíkir líkamlega þá er ekki þar með sagt að sama matarræðið dugi á þá báða, því fer víðs fjarri.

Þeir þættir  sem ég notast við hafa einfaldlega skorið úr um hvað þarf mikið af hitaeiningum og hvernig orkuefnaskiptingu skal háttað  sem dæmi til þess að þú getir öðlast draumalíkama.

·         Við þurfum að meta líkamlegt ástand viðkomandi með því að fitumæla og finna þar út fitufrían massa og reikna þá í kjölfarið heildarbrennslustig viðkomandi einstaklings.

·         Útbúið er matarprógram með persónulegar þarfir í huga og tekið er tillit til utanaðkomandi þátta eins og fæðuofnæmis og inntöku fæðurbótaefna ef nokkur eru o.s.frv

·         Ráðgjöf við val á fæðubótarefnum

·         Ráðgjöf við matarinnkaup og stungið upp á hagkvæmum kostum í matargerð

·         Ekki er um að ræða fæðu“fangelsi“ heldur þá er það öðru nær því þú munt þurfa að borða reglulega oft yfir daginn næringaríkar máltíðir svo líkaminn virkilega geri eitthvað í málunum, því ef þú sveltur þig þá    geturðu ekki búist við að nokkur skapaður hlutur gerist.

·         Haldið er utan um matardagbók og sent til þjálfara 1x í viku sem hann mun fara yfir.

Best er  að viðkomandi komist í viðtal þar sem þjálfari framkvæmir mælingar sjálfur og fer yfir þættina persónulega með iðkandanum.

Til þess að panta matarprógram og næringaráðgjöf þá þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram :

·         Aldur

·         Kyn

·         Þyngd

·         Hæð

·         Símanr

·         Gera nokkurskonar grein fyrir matarvenjum

·         Taka skal fram hvort þú ert með óþol eða ofnæmi fyrir einhverjum mat

·         Taka skal fram ef eru tekin fæðubótarefni og í hvaða tilgangi þá

·         Hver hefur árangur verið fram að þessum tíma

Best er  að viðkomandi komist í viðtal þar sem þjálfari framkvæmir mælingar sjálfur og fer yfir þættina persónulega með iðkandanum.

Verð er 12.900 kr
Pantaðu tíma og prógram með því að senda okkur línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með fyrirsögninni „NÆRING“.  *ÞAÐ GETUR TEKIÐ UPP Í 10 DAGA AÐ GERA MATARPRÓGRAM*
 


Skráning á póstlista