Fjarþjálfun
Fjarþjálfun body.is er ssett upp þannig að hún sé einstaklingsmiðuð þar sem við setjum upp vönduð einstaklingmiðuð æfingaprógröm. Okkar sín er sú að fjarþjálfun sé í raun eins og fjarnám þar sem þú færð verkefni í hendur frá okkur í formi æfingaprógramms og Næringaáætlunnar sem þú ferð eftir með eftirfylgni okkar. Við setjum upp raunhæf markmið í sameiningu sem við náum í sameiningu.
Þegar þú skráir þig færð þú ítarlegan spurningalista sendan sem þú fyllir út af bestu getu svo við fáum upp nákvæmasta mynd af þínu líkamsástandi sem við notum til hliðsjónar við gerð æfingaáætlanna.
Mikið er lagt upp úr að samskipti séu regluleg og virk svo tenging milli þjálfara og iðkanda sé mikil því hún skiptir máli. Við nýtum okkur tæknina í samskiptamátaanum á Tölvupósti, Msn spjallforriti, Facebook og/eða Skype, því mikilvægt er fyrir iðkandann að geta leitað til þjálfara með spurningar og vangaveltur. Þjálfararnir Kristján og Björn heita því að vera til staðar fyrir hvern og einn í gegnum þessar samskiptaleiðir hvenær sem er og svara eins fljótt og auðið er.
Fjarþjálfun Body.is ætlar að veita vandaða persónulega þjónustu og til að það náist þá hafa þeir ákveðið að gefa kost á 30 plássum í boði. Þegar sá fjöldi er kominn verður settur á biðlisti, er þetta gert til þess að þjálfarar geti sinnt öllum vel og fagmannlega.
Fjarþjálfun inniheldur :
- Aðgang að fullkomnu æfingaforriti sem inniheldur æfinga og matarprógram (sem sýnir næringaútreikninga allra matvæla), kennslumyndbönd af æfingum og heldur utan um allar mælingar.
- Mikil eftirfylgni og hvatning frá þjálfurunum Kristjáni og Birni
- Nytsamlegt lesefni og annað efni hugsað til náms fyrir iðkandan
- Ráðgjöf við val á bætiefnum
- Afslátt við kaup á bætiefnum hjá völdum verslunum