Um Body.isBody.is er vefsíða sem Björn Þór Sigurbjörnsson einkaþjálfari og Kristján Samúelsson einkaþjálfari/WBFF atvinnumaður í fitness eiga og reka, þeir eru báðir fæddir árið 1979 með 3 daga millibili, ólust upp í Grafarvoginum svo þeir þekkja hvorn annan býsna vel. Þeirra hugarfóstur er að vilja hjálpa fólki að komast í betra form og eiga kost á bættum lífsgæðum með bættri heilsu, þeir ákváðu að snúa aftur eftir fjölda áskoranna, þeir hafa báðir margra ára reynslu af þjálfun og hafa báðir sýnt fram á framúrskrandi árangur með sitt fólk. Aðalmarkmið vefsíðunnar er að vera afþreyingar og fræðsluvefur fyrir almenning sem hugsar um bætta heilsu og vill fræðast, fá aðgengi að upplýsingum og skjölum sem geta hjálpað iðkandanum að ná markmiðum sínum. Þ.b.n. sjálfshjálpartól eins og reikniformúlur, og létt prógrömm til að koma sér af stað úr sporunum sem verða staðsett undir flipanum Tæki og Tól. Body.is mun svo birta árið 2012 kennslumyndbönd af æfingum sem þeir munu taka upp, sem hugsuð eru til þess að fólk geri æfingarnar rétt og fái hugmyndir að auknum fjölbreytileika, því það finnst þeim mikilvægt að miðla. Þeir Kristján og Björn hafa m.a. hjálpað við samsetningar æfingum og efnum fyrir aðhaldsnámskeið hjá hóptímakennurum, haldið fyrirlestra í fyrirtækjum og stofnunum, og miðlað reynslu og þekkingu sinni til annara einkaþjálfara sem eru að stíga sín fyrstu skref og voru meðal brautryðjenda í þegar fjarþjálfun hófst hér á landi, einnig voru þeir fengnir að hugmyndaþróun á próteindrykk Hleðslu frá MS. Kiddi og Björn kappkosta að gera æfingarnar hnitmiðaðar svo þær skili tilætluðum árangri bæði líkamlega og einnig andlega svo þjálfunin og hinn breytti lífsstíll nýtist fólki í daglegu lífi. Hér getur þú skoðað umsagnir viðskiptavina á Birni og Kidda
Samstarfsaðilar
|
Skráðu þig á póstlista
-
Hafðu samband við okkur
Body.is - bætt heilsa, betra líf
body@body.is
2011 BODY.IS - BETRI LÍKAMI. ÖLL RÉTTINDI ÁSKILIN.
Skoða kort

