Umsagnir viðskiptavina
Um Björn Þór
Sverre Jakobsson
Atvinnumaður hjá GroBwallstadt og landsliðsmaður í handknattleik.
Sem atvinnumaður í handbolta þá er gríðarlega mikilvægt að halda sér í formi yfir langt og þétt tímabil, tala ekki um þegar landsliðsverkefni bætast svo ofaná. Ég kynntist Birni Þór af tilviljun í gegnum konuna mína sem hafði farið fögrum orðum um ágæti hans sem einkaþjálfara. Ég fór að leita ráða hjá honum í framhaldinu. Björn Þór hefur komið að því að auka úthald og styrk hjá mér sem og að taka mataræðið í gegn. Það sem hefur einkennt okkar samstarf er gríðarlegur vilji og metnaður hans til að skila árangri. Björn Þór hefur mikla fagþekkingu á öllu sem kemur að heilsu og líkamsrækt og nær að útskýra mál sitt vandlega og á mannamáli. Hann leggur sig allan fram í að koma til móts við mínar kröfur, aðlaga þær að því sem raunhæft er og halda svo uppi ströngu eftirliti. Ég get með góðri samvisku gefið Birni Þór mín bestu meðmæli.
Alexandra Helga Ívarsdóttir
Ungrfrú Ísland 2008 & Miss World Sports Woman 2008
Ég lenti í raun “óvart” hjá Bjödda í þjálfun. Ég var að fara keppa í Ungfrú Reykjavík og vildi fara í nákvæma mælingu. Þar tók Bjöddi á móti mér og bauðst til þess að hjálpa mér fram að keppni. Og mikið var ég heppin! Hann var með mjög gott eftirlit með bæði mataræði og æfingum þar sem hvoru tveggja var innan eðlilegra marka og raunhæft. Mataræðið var aldrei leiðinlegt og hann hjálpaði mér að gera það að lífstíl. Ég hélt svo áfram í þjálfun hjá honum þar til ég fór út að keppa í Miss World og náði miklum árangri frá því ég hitti hann fyrst. Hann er frábær þjálfari og það vantaði aldrei hvatningu, kunni svo sannarlega að stappa í mig stálinu! Æfingarnar voru einnig mjög fjölbreyttar og skemmtilegar. Stuðningur og þekking Bjödda fyrir keppnirnar var mér ómetanlegur!
Valgerður G. Hannesdóttir
eigandi smartshopusa.is
Eftir fertugt fór ég að bæta á mig aukakílóum og var alltaf þreytt og slöpp, alveg sama hvað ég gerði. Ég reyndi nánast öll ‘’trikkin’’ í bókinni, reyndi alls kyns hreyfingu og átaksnámskeið og prófaði Herbalife og alls konar kúra en það virkaði lítið sem ekkert. Mér var bent á að tala við Björn Þór Sigurbjörnsson einkaþjálfara og eftir að ég fór að æfa hjá honum þá var ekki aftur snúið. Að æfa undir leiðsögn Björns breytti lífi mínu til frambúðar og þeir sem þekkja mig geta staðfest það að árangurinn sem ég náði á þessum 4 mánuðum sem ég var hjá honum var vægast sagt ÓTRÚLEGUR ! Ég hef verið hjá nokkrum einkaþjálfurum áður , en aldrei náð svona góðum árangri. Æfingarnar, matseðlarnir, aðhaldið, stuðningurinn og hvatningin var algjörlega ómetanlegt. Í fyrsta skipti á ævinni var ég komin í toppform og gat líka borðað eins og hestur ![]()
Mikið af þeirri þekkingu og fróðleik sem Björn vann eftir þegar hann þjálfaði mig. er núna fyrst, 2 árum seinna að verða þekkt sem besta leiðin til að ná góðum árangri, m.a. í þáttunum góðkunnu ‘’Biggest Looser’’ og einnig hjá öðrum þjálfurum. Það sýnir best hversu góður þjálfari og mikill fagmaður Björn er.
Um Kidda:
Hæ allir.
Tómas Tómasson heiti ég og er kúnni hjá Body.is.
Kiddi Sam er þjálfarinn minn og hefur unnið kraftaverk þó minna væri sagt!
Sagan mín er svona:
September 2010 (sjá mynd) fékk ég sjokk þegar ég steig á vigtina í fyrsta skipti í fleiri ár
143.3 kg VÁÁÁÁÁÁÁ, ég leitaði leiða hjá Kidda Sam á body.is og hann reddaði mér matar og æfingaprófgrammi, Þetta er rosaleg lífsstílsbreyting sem þarf til en með frábærri hjálp frá Kidda Sam er ég í september 2011 var ég kominn niður í 108kg, og takmarkið er að ná niður fyrir 100kg og ég efast ekki að ég nái því með aðstoð Kidda og Body.is
